Dagskrá haustferðar Skógræktarfélags Garðabæjar
Laugardaginn 10. september býður Skógræktarfélagið til haustferðar austur fyrir fjall.
Heimsóttir verða áhugaverðir staðir:
· Gróðrarstöðin Kjarr í Ölfusi.
· Um Skeiðin verður farið um í leiðsögn Valgerðar Auðunsdóttur frá Húsatóftum.
· Ræktun við sumarbústað í Vaðneslandi í Grímsnesi.
Hafið með ykkur nesti til dagsferðar, skjólfatnað og góða skapið.
Lagt verður af stað frá Garðatorgi efra kl. 9:00, áætluð heimkoma um kl. 19:00.
Tilkynnið þátttöku til Barböru Stanzeit í síma 699 6233 eða á netfangið barbaras@internet.is
Stjórnin