Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Barbara Stanzeit, gjaldkeri Skógræktarfélags Garðabæjar, skrifuðu undir endurnýjaðan samning milli bæjarins og skógræktarfélagsins á aðalfundi Skógræktarfélags Garðabæjar 20. mars. Miðað er við að samningurinn gildi í tvö ár og skal endurskoðaður að þeim tíma liðnum en komi ekki til þess skal hann endurnýjast um tvö ár. Árlegur rekstrarstyrkur bæjarins til félagsins hækkar úr 3.000.000 kr. í 3.500.000 samkvæmt nýja samningnum.
Á fundinum var Sigurður Þórðarson kosinn formaður félagsins og tók við því hlutverki af Kristrúnu Sigurðardóttur. Kristrúnu voru færðar gjafir og þakkir fyrir hennar framlag til félagsins. Jafnframt var Helga Thors kjörin ný í stjórn en Kristrún gaf ekki kost á sér til frekari stjórnarsetu.
Að lokum hélt Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, fróðlegt og áhugavert erindi um yndisskóginn.