Skip to main content

Bryjnudalur

Gróðursetningarferðir í Brynjudalinn hafa verið árlegar

Skógræktarfélögunum á Suðverstur horni landsins bauðst að fá spildur til ræktunnar jólatrjáa frá Landgræðslusjóði. Skógræktarfélag Garðabæjar tók strax við þessum möguleika að koma upp ræktun sígrænna trjáa með aðaláherslu og möguleika á jólatrjáaskógi. Því holtin ofan Garðabæjar sýndust  ekki sérlega hentug til þeirrar ræktunar.

Gróðursetningarferðir í Brynjudalinn hafa verið árlegar í byrjun júní síðan félagið fékk umsjón með reitnum sem er um 1 ha. Þetta hafa verið vel sóttar ferðir félagsmanna sem notið hafa fegurðar og kyrrðar Brynjudalsins.

Greniskógurinn hefur staðist væntingar og vex ört í stærð jólatrjáa